assdimples

Sunday, July 16, 2006

Hér má reikna út hvort þið séuð í kjörþyngd :-)
Mjög sniðugt :-)
http://www.doktor.is/HTMLPage.aspx?pageid=bmi

Thursday, July 13, 2006


Sælar
Allt að verða vitlaust á síðunni :)
Ég er búin að panta mér samskonar sundföt og Jóhanna talaði um hér áður nema bara í rauðu, koma eftir 6-8 vikur :)
Annars er það að frétta úr herbúðum Brimborgardætra að Esjan var sigruð í gær :)
Jóhanna, Rósa, Silla og Aníta "æddu" upp hólinn! Já æddu segi ég...eða sko já allar nema ég "góðir hlutir gerast hægt" :) Vil nota tækifærið og þakka Jóhönnu fyrir andlegan stuðning :) og öllum hinum fyrir frábæran félagsskap...já og Rósu fyrir þurrkaða eplið :-) Og við fáum að sjálfsögðu "KLAPP" fyrir þetta framtak.
Hlakka til að sjá fleiri dætur með næst :-)

Friday, June 23, 2006

Hmmmm


Ég er búin að vera svo slök í þessu átaki að þetta verða sundfötin í sumar. Ég mun spóka mig í sundlaugum höfðuborgarinnar klædd frá toppi til táar, gott ef ég vef mig svo ekki í handklæði utanyfir. Samt smá spurning með skóna, þeir sýna full mikið þessir sko !!!!

Kv JBI

Jæja dömur

Þú veist það er 2006 ef...

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

Kv JBI

Wednesday, June 07, 2006

Sælar dömur
Hér hrúgast inn fróðleikur...
Allavega þá er síða vikunnar þessi:

http://www.heilsa.is/

Þarna má svo dæmi séu tekin 10 grunnreglur um mataræði.

Gangi ykkur vel dömur mínar !

Tuesday, May 30, 2006



Það hlaut að vera góð ástæða fyrir þessu...við erum hópur af gáfumennum ;-)

Útlitsmarkmið fyrir Ágúst


Er það spurning?? Neibb svona verð ég eftir 3 mánuði ekki smurning!!

Monday, May 29, 2006


Dagurinn er fimmtudagurinn 1. júní og stefnan er að ná toppnum!!

Nánari upplýsingar þegar nær dregur :-)

Friday, May 26, 2006

Hérna er smá tips fyrir keppendur: